Fyrir þig

Þorsteinn Einarsson

Ég hef verið hér fyrr
ég finn það svo vel
það er eitthvað sem togar í hjartað á mér

Ég finn líkamann eldast
er ég í honum dvel
hann á það til að þreytast á því að vera hér

En ég held áfram veginn
og stikurnar tel
því ég veit að einn daginn mun ég lenda hjá þér

Allt sem ég geri er fyrir þig
ég get ekkert annað
þú togar í mig
allt sem ég geri er fyrir þig
ég sé ekkert annað
annað en þig

Það er rólegt hér inni
og mér líður vel
en ég vil að þú vitir það sem þér ber

Allt sem ég geri er fyrir þig
ég get ekkert annað
þú togar í mig
allt sem ég geri er fyrir þig
ég sé ekkert annað
annað en þig

Curiosités sur la chanson Fyrir þig de Hjálmar

Qui a composé la chanson “Fyrir þig” de Hjálmar?
La chanson “Fyrir þig” de Hjálmar a été composée par Þorsteinn Einarsson.

Chansons les plus populaires [artist_preposition] Hjálmar

Autres artistes de Reggae music