Nýr heimur (feat. ÉG BÝÐ MIG FRAM)
Þú bíður, allt líður
Hringrásin hreyfir þig endalaust
Þú vonar og trúir
Að þetta sé ekki tilgangslaust
Þú starir og hugsar
Hrærist í hversdagsleikanum
En dreymir um framtíð
Nýr heimur rís upp úr djúpinu
Þú vilt fá, finna og þrá
Eitthvað sem hamast í brjóstinu
Sem kveikir á neistum
Sem breytir litnum á lífinu
Það bara hlýtur að vera
Einhver tilgangur með því að gera
Allt þetta rugl
Allt þetta rugl
Það hlýtur að vera eitthvað stærra
Eitthvað himinhvolfinu hærra
Því allt þetta rugl
Varla er þetta rugl til einskis
Hún birtist, þú finnur
Þér hlýnar, hjartað það slær svo ört
Hún svífur svo framhjá
Og óvænt er skýjahuluspá
Þú lærir að vera
Og lifa í augnablikinu
Njóta, umbera
Og liggja í stjörnurykinu
Þú gleymir til þess eins
Að muna að gráminn vill elta þig
Þá hleypur þú undan
Þú bara verður að losa þig
Það bara hlýtur að vera
Einhver tilgangur með því að gera
Allt þetta rugl
Allt þetta rugl
Það hlýtur að vera eitthvað stærra
Eitthvað himinhvolfinu hærra
Því allt þetta rugl
Varla er þetta rugl til einskis
Þú bíður, þér líður
Þú gefur, þú tekur
Þú lærir, þú lofar
Þú ruglast, þú grætur
Þú elskar, þú brosir
Þú titrar, þú tælir
Þú faðmar, þú vonar
Þú þreytist, þú særist
Þér batnar, þú vaknar
Þú getur, þú ætlar
Þú vinnur, þú tapar
Þú krumpast, þú sofnar
Þú svíkur, þú sættist
Þú gleymir, þér leiðist
Þú beyglast, þú sveiflast
Þú styrkist, þú brotnar
Þú gerðir, þú tengdist
Þú trúðir, þú gladdist
Þú elskaðir, þú breyttist
Þú lifðir, þú kvaddir