Vísa Úr Álftamýri

Þú sem átt engan að
Ekki öruggan stað
Eða sæng til að hlýja þér í

Þú sem misst hefur allt
Út í náttmyrkrið kalt
Ertu borinn og vistaður því

Ef þú átt engan aur
Ert þú örlítill maur
Luktum augum vors yfirvalds í

Því að svefndrukkin þjóð
Fagnar sjálfstæði, óð
Og allt siðferði brátt fyrir bí

Þetta myrkranna afl
Mannar hættulegt tafl
Og þá mennirnir falla eins og strá

Þar sem allt snýst um að
Setja tölur á blað
Og þá sitja menn fúlgunum á

Af því sem þú hefur
Er það sem þú gefur
Nákvæmlega það sem þú munt fá

Engin spurning um trú
Þetta er lögmál og þú
Getur alls ekki komist því hjá

Curiosités sur la chanson Vísa Úr Álftamýri de Hjálmar

Quand la chanson “Vísa Úr Álftamýri” a-t-elle été lancée par Hjálmar?
La chanson Vísa Úr Álftamýri a été lancée en 2007, sur l’album “Ferðasót”.

Chansons les plus populaires [artist_preposition] Hjálmar

Autres artistes de Reggae music